Það var hvorki sjálfgefið né auðvelt, í miðjum gjaldeyrishöftum árið 2013, að taka ákvörðun um að byggja fyrirtækið Alvotech upp á Íslandi.
Eftir ítarlega skoðun á mörgum kostum var það að lokum ákvörðun stjórnenda að fyrirtækið skyldi starfrækt hér á landi. Það er því einstaklega ánægjulegt, nú sjö árum seinna, að tvöfalda aðstöðuna á Íslandi og gera fyrirtækið þannig í stakk búið til að markaðssetja fyrstu líftæknilyfin á alþjóða vettvangi.
Fyrstu skóflustungur vegna viðbyggingar við hátæknisetur Alvotech í Vatnsmýri voru teknar 30. desember 2020. Róbert Wessman, stjórnarformaður fyrirtækisins, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands tóku fyrstu skóflustungur ásamt nokkrum lykilstarfsmönnum tengdum verkefninu.
Viðbyggingin sem verður 12.500 m² fer nærri að tvöfalda núverandi húsakynni Alvotech í Vatnsmýri. Áætluð verklok eru í lok árs 2022.
„Það er einstaklega ánægjulegt að ljúka þessu erfiða ári sem einkenndist af baráttunni við Covid-19 veiruna með svona jákvæðu skrefi við uppbyggingu fyrirtækisins til framtíðar,“ sagði Róbert Wessman.
Mun hýsa þróun líftæknilyfja
Stækkun setursins er framhald á þeirri vegferð sem hófst árið 2013 með stofnun Alvotech en skömmu síðar hófst bygging hátækniseturs fyrirtækisins í Vatnsmýri. Viðbyggingin mun meðal annars hýsa lyfjaþróun, áfyllingu lyfja, skrifstofur og vöruhús auk þess sem líftæknisvið Háskóla Íslands verður þar með aðstöðu og mun þannig eiga áfram í öflugu samstarfi við Alvotech. Aðstaðan mun gera Háskólanum kleift að efla enn frekar meistaranám í iðnaðarlíftækni og gefa fleiri nemum kost á starfsnámi hjá Alvotech á meðan á námi stendur.